27 apríl 2006

Knús frá mömmu og pabba

Einar Arnar að nálgast 5 mánaða aldurinn






Naga naga naga naga.


Feðgarnir að kíkja á eitthvað merkilegt.


Einar Arnar alltaf jafn hissa.

Já, enn hissa.

Einn koss fyrir mömmu.

Einn koss frá mömmu.

Feðgarnir að ræða málin. Einar Arnar á fullu að hjala og Sverrir svarar honum... eplið fellur sjaldan langt frá eikinni.

xx Einar Arnar og co.

18 apríl 2006

Ungbarnasund

Nýbúið að hella vatni yfir Einar Arnar til að æfa hann áður en hann fer í kaf.

Alltaf tími til að naga fingurna.

Já, líka í fermingarveislum.

Einar Arnar að uppgötva fæturna sína.

Náði að grípa í tærnar í fyrsta skipti.


Krútt.

Einn að einbeita sér.

Búinn að skvetta út um allt.

Að lokum komum við með stórfréttir. Einar Arnar snéri sér af bakinu yfir á magann alveg sjálfur í fyrsta sinn í dag! Þá er bara að æfa hina áttina, af maganum yfir á bakið.

xx Einar Arnar og co.

16 apríl 2006

Afmæli afmæli

Í dag á Aggi afi afmæli. Hér er hann að halda á mér á Bakkavörinni.
Til hamingju Aggi :o)

Í gær átti hún Magga mín afmæli. Þessi mynd er af fyrsta skiptinu sem hún hélt á Einari Arnari.

Lísa átti líka afmæli í gær. 25 ára mær. Átti því miður enga mynd af henni með Einar Arnari.

Einar Arnar að leika sér með spiladósafílinn sinn.

Í dag eru páskarnir og við Einar Arnar létum Sverri leita að páskaegginu sínu. Mjög skemmtileg iðja. Vorum í gær í páskamat hjá mömmu hans Sverris en förum í kvöld til mömmu minnar.

Tóta er búin að vera heima í nokkra daga og það var algjör endurnýjun, bökuðum kanadíska klatta og fengum okkur kaffi. Hittumst hér með nokkrum af stelpunum, borðuðum osta og þær kíktu í bæinn. Get ekki beðið eftir að hún komi aftur heim í sumar.

xx Einar Arnar og co.


07 apríl 2006

Einar Arnar orðinn fjögurra mánaða gamall

Einar Arnar að fá sér kríu í rúminu okkar. Með bossann út í loftið.

Einar Arnar kapmakátur að leika sér.

Einar Arnar - alltaf að strippa og skoða myndirnar sínar.

Einar Arnar og Salka. Þau æfa sund saman í Grafarvogslaug alla laugardaga.

Harpa og Lilli

Einar Arnar og Don Lilli. Þeir verða bestu vinir í framtíðinni. Sæbrautarbræður?

Rut með Ingólf sinn.

Sigga með Geir Hannes gutta.

Einar Arnar og Geir Hannes. Einari Arnari finnst alltaf öruggara að halda í eitthvað og að þessu sinni var lang öruggast að halda í öxlina á Geir Hannesi.

xx Einar Arnar og co.

02 apríl 2006

Pabbi 26 ára í gær!

Til hamingju með afmælið!
Sverrir átti afmæli í gær, 1. apríl, og þar sem dagurinn var svo ótrúlega vel skipulagður hjá okkur hafði ég ekki tíma til að setja inn myndir af feðgunum. En ungbarnasundið... Við fórum í fyrsta sinn í ungbarnasund í gær og það var alveg frábært. Einar Arnar var hinn hamingjusamasti og við lærðum margt nýtt sem hægt er að gera með þessi kríli. Enda eru þau algjörir snillingar - mun meiri snillingar en við héldum:o)
3. desember 2005

Mars '06



mmm... alltaf huggó að kúra saman.

xx Einar Arnar og co.