29 september 2006

Formleg mynd fyrir Þórdísi!!




Hæ hæ hæ!
Myndavélin hans Sverris er því miður eitthvað biluð og við getum ekki tekið myndir á hana og ég veit ekki hvort ég get halað niður þeim myndum sem við vorum búin að taka á hana í tölvuna svo ég rændi þessari mynd af mér og Einari Arnari af síðunni hans Geirs og Siggu... þannig að hér sjáið þið nýjustu myndina af okkur mæðginunum. Reyni að koma myndunum inn á síðuna:o)

Við hjónin fengum þessa skemmtilegu beiðni í hotmailið!

hér er formleg beiðni:

Undirrituð vill fá fleiri myndir af litla snúðinum og foreldrum hans.

Virðingarfyllst,
Þórdís Magnea Jónsdóttir


Auðvitað verður maður við óskum sem þessum!

xx Einar Arnar og co.

19 september 2006

Þar sem við höfum ekki tekið margar myndir undanfarið...

... set ég inn myndir frá því hann var 7 mánaða - bara svona í daglegu tjilli og þess háttar.
xx








05 september 2006

Einar Arnar upp á sitt besta!