10 maí 2006

Skemmtilegar staðreyndir

Í dag, 10. maí, er Einar Arnar 22ja vikna og 4ra daga gamall. Síðan við fengum þennan gulldreng í hendurnar hefur lífið leikið við okkur.














Hann fæddist 3. desember
Skírður 30. desmeber - 30 ára brúðkaupsafmælisdagur mömmu og pabba
Fór fyrst í vagninn í göngutúr 1. janúar 2006 með mömmu, pabba, ömmu (mömmu minni), Ransý, Tómasi og Helgu Guðrúnu
Hjalaði fyrst um 3-4ra vikna, nú getur hann gefið frá sér hin ýmsu háu og skræku hljóð sem gulldrengir gefa frá sér
Brosti fyrst 7 vikna
Greip í tærnar 20 vikna og 4ra daga
Snéri sér af maganum yfir á bakið 20 vikna og 4ra daga
Byrjaði í ungbarnasundi 1. apríl, 17. vikna











Hann fer núna að sofa klukkan 20 á kvöldin og vaknar milli 7 og 8. Vakir í klukkustund og leggur sig aftur í klukkutíma. Vakir í 2 tíma og þá eru menn orðnir þreyttir og vilja komast í vagninn sinn og leggja sig í 1-3 tíma (mjög breytilegt þar!) Eftir klukkan 17 reynum við að halda honum vakandi svo hann geti sofnað um 20 leytið.

Hann fær enn eingöngu brjóstamjólk en við ætlum að gefa honum smá mat með þegar hann verður 6 mánaða en þá erum við mæðginin ný komin frá Mallorka! Já, hann er að fara í sína fyrstu utanlandsferð 25. maí með mömmu sinni, Hervöru og Möggu.

Þá er komið nóg af upplýsingum um snáðann.
Sæl að sinni,

xx Rúna og co.

06 maí 2006

Héðan og þaðan

Einar Arnar búinn að eignast litla frænku! Kveðjur til Bryndísar, Atla og Ása.
Litli karlinn í sundi - ný búið að hella vatni yfir hann.

Fjölskyldan að kúra saman.


Prinsinn í baði. Alltaf jafn sjarmerandi:

Krúttið okkar.

Pabbaknús um páskana.

xx Einar Arnar og co.