23 desember 2006

Gleðileg Jól!!



xx Einar Arnar jólastrákur

p.s. Sóla besta frænka fær þúsund kossa senda frá okkur:o)

04 desember 2006

Tónarnir valdir

Einhverjar pælingar um tónlistina sem hann var að hlusta á :o)

xx Einar Arnar duglegi

03 desember 2006

Hann á afmæl'í dag!!!

Einar Arnar er 1 árs í dag og í tilefni þess fer maður vitanlega að hugsa til baka! Það er náttúrulega magnað að fyrir aðeins einu ári fæddum við hann í heiminn og á þessum stutta tíma hefur hann lært svo ótrúlega margt.

Að halda höfði
Að sitja
Að snúa sér
Að kyssa
... já og líka að senda fingurkoss:o)
Að skríða
Að nota þessar fjórar tönnslur sem hann hefur áorkað þessa 12 mánuði
Að þrasa við pabba sinn þegar hann er að banna honum að henda glasinu á gólfið
Að kyssa mömmu sína þegar hann vaknar og kúra hjá henni áður en hann dregur pabba
sinn fram til að leyfa mömmu að sofa AÐEINS lengur;o)

Það væri hægt að halda endalaust áfram með þá mögnuðu hluti sem hann hefur lært, þess í stað koma glænýjar myndir af afmælisbarninu!

Einar Arnar í afmælinu sínu - fékk þessa húfu og peysu frá langömmu og langafa - bangsann fékk hann frá Hervöru og Fríðu:o) ... svona er hann aaaaa (góður) við bangsann.

Tók forskot á sæluna og opnaði pakkana frá frændsyskinum sínum:o) Bessi og Guðmundur Ingi fylgjast spenntir með meðan Sverrir og Helga Guðrún sýna honum gjöfina og Tómas í bakgrunninum að finna næsta pakka!!



Hérna er hann að hlusta smá á tónlist áður en hann fer að lúlla sér - eins og sést er hann í góðum
fílíng að syngja með:o)

xx Einar Arnar Afmælisbarn

01 desember 2006

Einar Arnar í fullu fjöri



xx 363ja daga gamli Einar Arnar sem var heldur ósáttur við að fá ekki að taka myndavélina af mömmu sinni!