16 apríl 2006

Afmæli afmæli

Í dag á Aggi afi afmæli. Hér er hann að halda á mér á Bakkavörinni.
Til hamingju Aggi :o)

Í gær átti hún Magga mín afmæli. Þessi mynd er af fyrsta skiptinu sem hún hélt á Einari Arnari.

Lísa átti líka afmæli í gær. 25 ára mær. Átti því miður enga mynd af henni með Einar Arnari.

Einar Arnar að leika sér með spiladósafílinn sinn.

Í dag eru páskarnir og við Einar Arnar létum Sverri leita að páskaegginu sínu. Mjög skemmtileg iðja. Vorum í gær í páskamat hjá mömmu hans Sverris en förum í kvöld til mömmu minnar.

Tóta er búin að vera heima í nokkra daga og það var algjör endurnýjun, bökuðum kanadíska klatta og fengum okkur kaffi. Hittumst hér með nokkrum af stelpunum, borðuðum osta og þær kíktu í bæinn. Get ekki beðið eftir að hún komi aftur heim í sumar.

xx Einar Arnar og co.


3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Hæ !!! Gleðilega páska! Gaman að fylgjast með ykkur. Sjáumst vonandi fljótt.
kv. guðrúnmargrét

sunnudagur, 16 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Kærar þakkir fyrir afmæliskveðjuna litla fjölskylda, ekki amalegt að fá svona skemmtilega kveðju á heimasíðu aðal prinsins í bænum!

Og gleðilega páska og vona þið hafið haft það gott um páskana!
bíð spennt eftir að fari að renna inn myndir úr ungbarnasundinu :D
kv. magga

mánudagur, 17 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir mig:*

miðvikudagur, 19 apríl, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home