20 nóvember 2005

Myndir - 38 vikur búnar




Komin 38 vikur á leið og orðin nokkuð leið á því að hafa þessa mega kúlu framan á mér.

Klukkan er þarna um 5:30 um nótt... og ég að reyna að stytta mér stundir því Sverrir var sofandi og prufaði að taka myndir í speglinum, eins og sést á geislanum þarna. Hvað um það... svona lít ég út - alveg að springa.
Óléttubuxurnar komast ekki einu sinni ofar en þetta og maður því alltaf með "plummer" Hve huggulegt er það?

xx Rúna

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er hin myndarlegasta bumba :o) Er sem sagt 42 vikna planið dottið upp fyrir... hehehe!!?? Það er best að vera við öllu búin.
Farðu vel með þig mús.

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

va hvad hun er stor og va hvad eg er sur yfir thvi ad missa af henni i beinni.en eg kem heim 27.des og tha ætla eg sko ekki ad missa af innihaldinu!!!hlakka endalaust til ad sja litla grislinginn sem eg segi ad se mini-runa.og eg ætla ad halda mig vid tha skodun,tho eg reyni ad segja annad sidar..
knus og kossar hb

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Blogger Asdis said...

Mér finnst bumban geðveikt flott, ekki slit að sjá. En skil vel að þú sért orðin þreytt, erfiður tími að bíða.
kv.
Ásdís

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Blogger Rúna said...

Já, það er sko mega erfitt, svo er ég komin með þessa fyrirvaraverki og er alltaf að vonast til að barnið komi bara en svo gerist ekki neitt :o(
Er enn ekki slitin en held það geti alveg gerst á næstu vikum... hugsið vel til húðarinnar minnar svo ég sleppi!

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

VOOOO thetta er sko óska bumba alveg perfect:)

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá hvað þetta er sæt bumba, gæti ekki verið flottari. Ég var einmitt farin að bíða ansi mikið eftir 38 vikur því ég fann á mér (lesist "vonaði") að ég myndi eiga svona í fyrra lagi....en svo var ekki. Gangi þér vel...nú gæti krílið komið á hverri stundu.

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Blogger Hrefna said...

Þetta var sko frá mér...Hrefnu litu

sunnudagur, 20 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að Sæbró sys eru duglegar að kommenta! Hre

mánudagur, 21 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

já sammála því!!

xx Rúna

mánudagur, 21 nóvember, 2005  
Blogger hs said...

vá flott bumba.
ég legg rauða flösku undir að þetta sé strákur. ;)

hafðu það gott og það er töff að vera með plömmer ... allavega eru allir strákar með buxur fyrir neðan mörkin hér í köben. NB þröngar buxur en ýta þeim niður...

knus
huldasif

miðvikudagur, 23 nóvember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home