14 ágúst 2005

24 vikur búnar í dag!

Sex mánuðir af tíu búnir í dag eða 24 vikur af 40.
Krílið orðið nokkuð stórt held ég barasta, það er enn jafnduglegt við að stunda erobic, handbolta, ballet, fimleika eða hvað það er sem það gerir í "the spa" sem það hefur nú legið í síðustu mánuði.

Því miður er ég farin að fá netta verki í magan þar sem hann stundar teygjuæfingar allan sólahringinn, aldrei hélt ég að ég myndi fá stækkunarverki í magann en sú er raunina, það sem maður gerir ekki fyrir gott málefni, úfff.. Merkilegast finnst mér að innan nokkurra mánaða verður eins og lofti hafi verið hleypt úr manni, maginn fellur niður og verður samur og hann var (vonandi!)

  • Amma hans Sverris á afmæli í dag svo það er um að gera að segja til hamingju með 82ja ára afmælið, Guðný!
  • Takk stelpur fyrir mega skemmtilegt matarboð á föstudaginn og hittinginn heima hjá Hrafnhildi í gær! Ég fæ aldrei leið á því að við hittumst, spáið í það hvað það segir um ykkur, hehehe, þið eruð yndi.

xx Rúna

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

er HANN að stunda teygjuæfingar..., ég er farin að fá sterka strákastrauma frá bumbunni. Gott að mín hvítvín fór á rétt kyn. Takk fyrir mjög vel heppnað matarboð, geðveikt góður hristingur og gott að allir félagarnir eru komnir heilir til landsins, verður gaman að sjá hvort það heppnist að halda saumó með 100% mætingu.

sunnudagur, 14 ágúst, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk sömuleiðis fyrir flott matarboð...verð barasta svöng að hugsa um það:)

mánudagur, 15 ágúst, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home