27 júlí 2005

Þessi er mega fyndinn! Passið að míga ekki í buxurnar.

Ágæta tæknideild.
Fyrir nokkrum árum fékk ég mér uppfærslu úr Boyfriend 5.0 í Husband 1.0.
Fljótlega á eftir tók ég eftir því að nýja forritið átti í örðugleikum með að aðlagast þeim forritum sem fyrir voru og takmarkaði til dæmis aðgang minn að blóma og skartgripaskránum sem hafði verið ekkert mál að opna með gamla forritinu Boyfriend 5.0. Ekki nóg með þetta heldur eyddi Husband 1.0 mörgum mikilvægum forritum eins og t.d. Hot-sex 1.0 og Romance 9.9 en setti inn önnur forrit sem ég kærði mig ekkert um, eins og NBA 3.0 og Formula 6.0. Forritið Conversation 8.0 virkar ekki lengur og ef ég ræsi upp HouseCleaning 2.6 hrynur kerfið. Ég hef prófað viðgerðarforritið Nagging 5.3 til að laga þetta en ekkert gengur. Hvað get ég gert ?
Kveðja Baby


Ágæta Baby
Hafa ber í huga að Boyfriend 5.0 er eingöngu skemmtiforrit meðan að Husband 1.0 er stýrikerfi. Prófaðu að slá inn skipunina "C:\ITHOUGHT YOU LOVED ME" og ræsa síðan upp viðgerðarforritið Tears 6.2. Stýrikerfið Husband 1.0 ætti að bregðast við með því að ræsa sjálkrafa upp Guilty 3.0 og Flowers 7.0. Passaðu þig á að ræsa ekki upp Beer 6.1 sem býr til "Snoring Loudly" hljóðskrár eða forritið MotherInLaw 1.0. Ekki reyna heldur að ræsa annað Boyfriend forrit. Þetta eru forrit sem stýrikerfið Husband 1.0! styður ekki og gætu valdið algjöru kerfishruni. Í stuttu máli er Husband 1.0 frábært forrit, en er með takmarkað minni og er ekki fljótt að læra að vinna með nýjum forritum. Þú gætir prófað að kaupa hjálparforrit til að bæta virkni Husband 1.0. Við hér á tæknideildinni mælum sérstaklega með HotFood 3.0, Lingerie 5.3 og Keep-a-nice-body 10.1
Kær kveðja
Tæknideildin

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já hann er sko fyndinn, maður ætti að láta þessar uppfærslur vera. Takk fyrir skemmtilegt kvöld, vona að heimilið sé ekki eins og reykhús og btw ég er geðveikt spennt fyrir hringferðinni okkar.
Góða ferð Papa Sveik og Drúbí megamama;)

Hervör

fimmtudagur, 28 júlí, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Hversu týpískt er það samt að kvenfólkið á að kaupa sér hjálparforrit svo að Husband dótið virki betur og passa sig svo að ræsa ekki upp miður skemmtileg forrit. Meiri primadonnurnar þessir karlar.

Hervör

fimmtudagur, 28 júlí, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Frekar fyndið ;)

Skemmtið ykkur vel um helgina....

luv Ace

föstudagur, 29 júlí, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home