06 júní 2006

Fimmti mánuðurinn hans Einars Arnars

Loksins sest maður niður og ætlar að setja inn fullt af myndum og þá er þetta hægara sagt en gert. Er búin að prófa að setja inn mydir og það koma bara örfáar. Því set ég bara inn fleiri bráðum. Hér eru myndir héðan og þaðan en allar af honum á 5. mánuði.



Úti á Mallorca fékk hann djús blandað við vatn og honum fannst hann ekki neitt lítið gæjalegur þegar hann var að drekka... eins og sést á myndinni.

Hér er hann að fá vatn í fyrsta sinn. Fannst það heldur bragðlaust og vildi bara frekar fá sér mjólkina sína. Í fyrsta sinn í flugvél. Bara huggó, ekkert mál fyrir þennan gaur.

Á leikteppinu sínu. Reyndar orðinn svolítið leiður á því og vill helst ekki vera þar lengi einn en lætur það vera ef við erum hjá honum og leikum við hann.

Einar Arnar ný vaknaður og svolítið svefn drukkinn.

Jæja, það eru svo mega margar myndir sem mig langaði að setja inn en nenni ekki lengur að reyna svo ég reyni bara aftur eftir nokkra daga. Hann var t.d. krúnurakaður fyrir nokkrum vikum og fullt annað skemmtilegt gert.

Bless í bili,

xx Einar Arnar og co.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Krutty!thad er ekki hægt ad segja annad.eda ju ok, fullt hægt ad segja annad, en eg segi bara krutty nuna..anyways, gaman ad hittast runa og vid skulum reyna ad vinna i ferdamalum!!
knus
hb

þriðjudagur, 06 júní, 2006  
Blogger Rúna said...

Já, hann er sko krúttí, ekki hægt að segja annað. Verðum að funda um þetta þegar þið Danabúar eruð komnar heim.

xx Rúna

þriðjudagur, 06 júní, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Krútt er hann. Gæjalegur á Mæjorka. Hlakka til að hitta ykkur, eigum við að hittast í vikunni, verð í sambandi:o)
Luv Harpa og Sæbrautarbróðirinn Hilmir

þriðjudagur, 06 júní, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Var hann komin með svona mikið hár litla krúttið, bíð spennt eftir hárgreiðslu myndum!

miðvikudagur, 07 júní, 2006  
Blogger hs said...

oh sætastur, það var ótrúlega gaman að fá að hitta þig aðeins u m daginn og knúsa.
bræddir mig alveg:)
knús til ykkar allra
hulda sif

sunnudagur, 11 júní, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

jabbs ... við endurvekjum mömmuklúbbinn okkar þegar Sigga kemur heim :D

myndirnar eru yndislegar Rúna!!! ...get ekki beðið eftir næstu myndum - sérstaklega þessum krúnurökuðum hehehe!

xx

p.s. ég var að setja ný albúm á heimasíðuna hans Ingólfs ;)

mánudagur, 12 júní, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home